SKILVIRK SKRÁNING
SKAPANDI ÞEKKING
Skrifstofuþjónusta Austurlands veitir þjónustu um allt Austurland og
ennfremur til annarra landsfjórðunga ef svo ber undir.
Skrifstofuþjónusta Austurlands veitir þjónustu um allt Austurland og
ennfremur til annarra landsfjórðunga ef svo ber undir.
Skrifað þann .
Skrifstofuþjónusta Austurlands er hópur bókara og reikningsskilafólks með áralanga reynslu og margháttaða þekkingu á öllu því sem snýr að bókhaldi, launavinnslu, reikningsskilum og skattskilum.
Við höfum þjónað austfirsku atvinnulífi hátt í 15 ár og reynslubanki okkar er alltaf að verða ríkari. Við erum lausnamiðuð og eigum í samstarfi við sérfræðinga á tengdum sviðum þegar þekkingu okkar þrýtur.
Þjónusta okkar er veitt á 5 stöðum víða um Austurland, sjá https://www.skrifa.is/skrifa/fyrirtaekidSkrifað þann .
Starfsfólk SKRIFA ásamt mökum nutu stórkostlegrar veislu á Skjöldólfsstöðum í gærkvöldi undir ágætri dagskrá húsráðanda, sem sagði sögur á milli þess sem hagyrðingarnir, Jóhannes á Gunnarsstöðum, Andrés á Gilsárvöllum og Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku léku listir sínar.
"Dansur aftaná" að hætti Friðjóns Jóhannssonar.
Skrifað þann .
Magda Wróblewska hefur verið ráðin til starfa hjá Skrifstofuþjónusta Austurlands á Egilsstöðum.
Magda hefur stúdentspróf á viðskipta- og skrifstofubraut frá Póllandi en hóf störf í söluskála N1 á Egilsstöðum árið 2006, þar sem hún hefur sinnt umsjón af ýmsu tagi.
Magda talar ágæta íslensku og mun starfa við bókhald afstemmingar, launavinnslur og önnur þau verkefni sem til falla.
Skrifað þann .
Nanna Hjálmþórsdóttir hefur nú látið af störfum hjá Skrifstofuþjónustu Austurlands og hafið störf hjá KPMG á Egilsstöðum.
Þar sem samstarf milli SKRIFA og KPMG er náið er ekki útilokað að þeir viðskiptavinir sem notið hafa þjónustu Nönnu geti leitað til hennar áfram að gefnu samþykki stjórnenda KPMG
Hér með er Nönnui þakkað ágætt samstarf og henni óskað góðs gengis hjá hinum nýja vinnuveitanda.
Skrifað þann .
Í vor lét Sonia del Carmen Stefánsson af störfum hjá okkur og í staðinn hefur Sunna Dögg Guðjónsdóttir tekið til starfa. Um leið og við þökkum Soniu fyrir ágætt samstarf á liðnum árum bjóðum við Sunnu Dögg velkomna til starfa.
Ertu með spurningar eða verkefni sem þarfa að leysa?
Hafðu þá samband við okkur og við aðstoðum þig við að greiða úr vandanum.